Starfsfólk Síldarminjasafnsins á Ítalíu
Nú í byrjun maí var Síldarminjasafnið þátttakandi á 20 ára afmælishátíð Micheletti-stofnunarinnar í Brescia á Ítalíu. Samtímis var haldið þar ársþing European Museum Academy, EMA.
Til þessarar hátíðar var boðið öllum söfnunum nítján sem hlotið hafa Micheletti verðlaunin fram til þessa og þannig útnefnd sem bestu söfn Evrópu á sviði iðnaðar, vísinda eða samfélagssögu ár hvert. Eins og margir muna hlaut Síldarminjasafnið verðlaunin árið 2004.
Stjórn Síldarminjasafnsins ákvað að þiggja boðið og úr varð að allir þrír starfsmenn safnsins, Anita, Steinunn og Örlygur fóru þessa ferð sem stóð frá 6. – 10. maí. Mikið var þingað þessa daga og söfn skoðuð í Mílanó, Brescia og í Ítölsku Ölpunum. Þremenningarnir stóðu fyrir kynningu á Síldarminjasafninu og tóku þátt í hringborðsumræðum. Ljóst er að þessi sjaldgæfa þátttaka Íslands í ársfundi EMA vakti bæði athygli og áhuga forráðamanna akademíunnar og margra þátttökugesta.
Meðfylgjandi mynd sýnir þau Steinunni, Anitu og Örlyg með Wim van der Weiden formanni „Evrópsku safnaakademíunnar“, einum mesta áhrifamanni í evrópsku safnasamfélagi. Wim hefur komið tvisvar til Siglufjarðar og góður kunningsskapur því myndast milli hans og Siglfirðinganna.
- Eldri frétt
- Nýrri frétt