Fréttir

29.399 kr. til ABC barnahjálpar í nafni Gústa guðsmanns

22. des. 2015

Í beitningaskúr Gústa guðsmanns í Bátahúsinu er söfnunarkútur þar sem gestum er boðið leggja eitthvað af mörkum til ABC barnahjálpar – og viðhalda þannig hjálparstarfi guðsmannsins. Árssöfnunin 2015 nam 29.399 krónum og hafa þær verið lagðar inn á bankareikning ABC barnahjálpar. Framlögin á síðasta ári voru töluvert hærri, eða 42.985,-
Þetta er í þriðja sinn sem kúturinn er tæmdur í aðdraganda jólanna – en alls hefur söfnunin skilað tæpum 100.000 kr.-

Fréttir