Konur í síldarvinnu
Þetta stóra og þekkta málverk er komið á Síldarminjasafnið. Mynd sem ætti að vera flestum Siglfirðingum mjög kunnug.
Síldarstúlkurnar hans Gunnlaugs Blöndal hafa í nærri 70 ár verið eins og eitt af kennileitunum í bænum þar sem þær prýddu húsakynni Útvegsbankans síðar Íslandsbanka og Glitnis og síðast Sparisjóðs Siglufjarðar. Hólshyrnan, Hestskarðshnjúkur, kirkjan – og máluðu síldarstúlkurnar.
Þarna hafa þær blasað við viðskiptavinum bankastofnananna eða vegfarendum sem litu inn um gluggana á ferð sinni um Aðalgötuna. Þarna voru þær að baki stúarahópsins, hafnarvinnukallanna, sem stóðu vaktina á Tórahorninu á kvöldin og vógu og mátu hið fjöruga mannlíf í bænum. Og á snóþungum vetrum voru þær í hlýjum litum sínum og athafnasemi eins og eilíft tákn um síldarvonina á nýju og björtu sumri.
Svo ferðuðust þær víða, fóru nokkrar ferðir til Reykjavíkur, t.d. á sýningu þar árið 1961, voru á sýningu í Barcelona á Spáni 1955 og dvöldu á skrifstofu Glitnis í New York í góðærinu 2007-2008. En það var einmitt við komu málverksins aftur til Íslands 2008 að Síldarminjasafnið samdi við Nýja- Glitni að varðveita verkið til frambúðar á Siglufirði. Þar með fékkst nokkurs konar staðfesting á því að þar ætti það heima og hvergi annars staðar. Á Þorláksmessu það sama ár opnaði safnið málverkasýningu í afgreiðslusal Sparisjóðsins í gamla Útvegsbankahúsinu. Nú hefur Sparisjóðnum verið lokað endanlega og málverkasýningin tekin niður. Og því hangir málverkið „fræga“ nú í fundarsal Síldarminjasafnsins.
Loks má þess geta að málverkinu er ætlað mikilvægt hlutverk í Salthúsinu að viðgerð þess lokinni. Þar verði verkið sem miðja í nýrri sýningu um veturinn í síldarbænum. -ök
.
Nánar um sögu málverksins:
http://www.sild.is/ahugavert/greinar/vidforult-malverk-gunnlaugs-blondal/
Fréttir- Eldri frétt
- Nýrri frétt