Fréttir

Aldrei fyrr fleiri gestir

7. jan. 2016

  • Safnsvæðið við bátahúsið

Árið 2015 sóttu 22.090 gestir Síldarminjasafnið heim, en aldrei fyrr hefur gestatalan verið svo há. Það er áhugavert að líta til fjölgunar erlendra ferðamanna milli ára – þeir voru um 5.000 fleiri á árinu 2015 en 2014 eða alls 52% allra safngesta.
Hæst hlutfall gesta okkar á Síldarminjasafninu á árinu 2015 voru þeir sem komu á eigin vegum, eða 52%. Þá komu 38% með skipulögðum hópferðum og 10% gesta sóttu einstaka viðburði, svo sem síldarsaltanir eða tónleika í húsakynnum safnsins.

Allt útlit er fyrir að árið 2016 verði safninu hagstætt, en nú fyrstu vikuna í janúar liggja fyrir um 180 bókanir fyrir árið auk þess sem 14 skemmtiferðaskip hafa boðað komu sína til Siglufjarðar.

Fréttir