"Draumur hins djarfa manns. Frá sjómannalögum til gúanó rokks"
Eyfirski safnadagurinn var haldinn hátíðlegur í tíunda sinn í síðustu viku, nánar tiltekið á sumardaginn fyrsta. Á Síldarminjasafninu var boðið upp á erindi um íslensku sjómannalögin.
Rósa Margrét Húnadóttir, þjóðfræðingur og fyrrum starfsmaður safnsins, fjallaði um sjómannalögin sem heimild um hugarheim Íslendinga um miðja síðustu öld, væntingar þeirra og þrár. Jafnframt ræddi hún hvernig textarnir gefa okkur færi á að kynnast samfélagi sem runnið hefur sitt skeið á enda. Haukur Orri Kristjánsson lék nokkur vel þekkt lög á harmonikku á meðan erindið fór fram.
Um sextíu manns voru viðstaddir, en alls heimsóttu rúmlega 140 gestir Síldarminjasafnið á Eyfirska safnadeginum í ár.
Fréttir- Eldri frétt
- Nýrri frétt