Fréttir

Tónlistarviðburður í Bátahúsi

18. okt. 2016

Fimmtudagskvöldið næstkomandi, þann 20. október, kl. 20:00 fer fram viðburður á vegum Listhúss / Norðanvinds í Bátahúsinu. Flutt verða tónverk sem samin hafa verið sl. tvo mánuði hér á Siglufirði og í Ólafsfirði, en listamennirnir hafa fengið sérstakan innblástur frá umhverfinu hér norðanlands.

Eftirfarandi listamenn flytja tónverk:
Lárus H. List (Ísland)
Gail Priest (Ástralía)
Sebastian Franzen (Svíþjóð)
Thomas Watkiss (Bandaríkin)
Michael Terren (Ástralía)
Girilal Baars (Svíþjóð)
Kate Carr (Ástralía)

Ókeypis aðgangur - allir velkomnir!

Fréttir