Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Velkomin á heimasíðuna

Síldarminjasafn Íslands

Síldarminjasafnið er stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins. Í þremur ólíkum húsum kynnumst við síldveiðum og vinnslu á silfri hafsins. Í Bátahúsinu liggja skip og bátar við bryggjur þar sem hafnarstemningin frá því um 1950 er endursköpuð. Róaldsbrakki er gamla norska söltunarstöðin og þar er flest eins og áður, vistarverur síldarstúlknanna, kontórinn og vinnuplássið. Á góðum sumardögum er þar sýnd síldarsöltun, harmonikan þanin og slegið er upp bryggjuballi. Í Gránu er safn um sögu bræðsluiðnaðarins sem löngum hefur verið kallaður fyrsta stóriðja Íslendinga. Þar hefur verið komið upp lítilli síldarverksmiðju frá 1935-40.

Safnið er opið daglega frá 1. júní til 15. september. Opnunartímar eru sem hér segir:  Frá 1. júní - 17. júní kl 13-17. Frá 18. júní -20. ágúst kl 10-18. Frá 21. ágúst – 15. september kl 13-17.  

Á öðrum tímum er opið eftir samkomulagi.

Aðgangseyrir er 1.200 kr. ókeypis er fyrir börn og unglinga undir 16 ára. Lífeyrisþegar og ungmenni undir 20 ára greiða 600 kr.

Síldarminjasafnið hlaut Íslensku safnverðlaunin árið 2000 er þau voru veitt í fyrsta sinn og Evrópuverðlaun safna árið 2004, Micheletti verðlaunin, þegar safnið var valið besta nýja iðnaðarsafn Evrópu það árið.

Fréttir

Snókur semur við Fáum

Snóksfélagar og stjórn FÁUM
Örnefnafélagið Snókur og FÁUM - Félag áhugamanna um minjasafn hafa undirritað samning um að FÁUM annist öll viðskipti fyrir örnefnasíðu Snóks, snokur.is
FÁUM mun varðveita sjóð félagsins, afla styrkja og greiða reikninga. Snóksfélagar munu eftir sem áður sjá um faglegu hlið örnefnasíðunnar.
Á snokur.is er kynnt örnefnasafn Helga Guðmundssonar sem hann vann að á Siglufirði um 1940. Þar er nálægt 1300 örnefnum lýst í gamla Sigluneshreppi; Siglufirði, Úlfsdölum, Siglunesi, Héðinsfirði og Hvanndölum.
FÁUM var stofnað 1989 og var hinn formlegi farvegur fyrir uppbyggingu Síldarminjasafnsins og rekstur þess til ársins 2006 þegar félag ásamt Siglufjarðarkaupstað breyttu safninu í sjálfseignarstofnun.
FÁUM starfar nú sem helsti bakhjarl Síldarminjasafnsins. Lesa meira

Skíðaminjadeild FÁUM sett á fót

Stjórn FÁUM og forystumenn skíðaminjadeildar

Þeir Bjarni Þorgeirsson, Jón Andrjes Hinriksson, Benóný Sigurður Þorkelsson og Rögnvaldur Þórðarson leituðu til FÁUM – félags áhugamanna um minjasafn, um að stofnuð yrði skíðaminjadeild innan félagsins. Þessi umleitun þeirra var samþykkt á fundi FÁUM 20. febrúar með undirskrift formlegs samnings. Kapparnir vilja færa skíðasögu Siglufjarðar til vegs og virðingar og hafa þegar staðið fyrir lítilli sýningu í glugga KS skrifstofunnar eins og flestum bæjarbúum er kunnugt.  

 


Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning