Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Velkomin á heimasíðuna

Síldarminjasafn Íslands

Síldarminjasafnið er stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins. Í þremur ólíkum húsum kynnumst við síldveiðum og vinnslu á silfri hafsins. Í Bátahúsinu liggja skip og bátar við bryggjur þar sem hafnarstemningin frá því um 1950 er endursköpuð. Róaldsbrakki er gamla norska söltunarstöðin og þar er flest eins og áður, vistarverur síldarstúlknanna, kontórinn og vinnuplássið. Á góðum sumardögum er þar sýnd síldarsöltun, harmonikan þanin og slegið er upp bryggjuballi. Í Gránu er safn um sögu bræðsluiðnaðarins sem löngum hefur verið kallaður fyrsta stóriðja Íslendinga. Þar hefur verið komið upp lítilli síldarverksmiðju frá 1935-40.

Safnið er opið daglega frá 1. júní til 15. september. Opnunartímar eru sem hér segir:  Frá 1. júní - 17. júní kl 13-17. Frá 18. júní -20. ágúst kl 10-18. Frá 21. ágúst – 15. september kl 13-17.  

Á öðrum tímum er opið eftir samkomulagi.

Aðgangseyrir er 1.200 kr. ókeypis er fyrir börn og unglinga undir 16 ára. Lífeyrisþegar og ungmenni undir 20 ára greiða 600 kr.

Síldarminjasafnið hlaut Íslensku safnverðlaunin árið 2000 er þau voru veitt í fyrsta sinn og Evrópuverðlaun safna árið 2004, Micheletti verðlaunin, þegar safnið var valið besta nýja iðnaðarsafn Evrópu það árið.

Fréttir

Nýtt sjónarhorn

Mynd ÖK

Nú standa eftir gamlir bryggjustaurar í sjó  þar sem síldarsöltun Róaldstöðvarinnar og síðar Njarðar var í 60 ár. Og gera má ráð fyrir því að þeir eigi eftir að verða vinsælt myndefni ferðamanna í framtíðinni. Að ósk starfsmanna Síldarminjasafnsins fá þessir staurar væntanlega að standa sem minnisvarði um eina síðustu síldarbryggjuna og verður upplýsingaskilti með áhrifamikilli mynd sett upp á staðnum næsta vor.


Dúfurnar fá nýjan samastað

Mynd ÖK
Þann 1. september var komin stór kranabíll fyrir framan Bátahúsið í þeim tilgangi að rífa niður síðasta bryggjuhúsið frá síldarárunum. Elstu leifar hússins voru frá Njarðarstöðinni, eða gömlu söltunarstöð KEA. Áður en hafist var handa við niðurrif þurfti að koma íbúum hússins fyrir á nýjum stað, en eins og flestir Siglfirðingar vita hefur bryggjuhúsið verið dvalarstaður dúfnanna í bænum. Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning