Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Velkomin á heimasíðuna

Síldarminjasafn Íslands

Síldarminjasafnið er eitt stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins. Í þremur ólíkum húsum kynnumst við síldveiðum og vinnslu á silfri hafsins. Í Bátahúsinu liggja skip og bátar við bryggjur þar sem hafnarstemningin frá því um 1950 er endursköpuð. Róaldsbrakki er gamla norska söltunarstöðin og þar er flest eins og áður, vistarverur síldarstúlknanna, kontórinn og vinnuplássið. Á góðum sumardögum er þar sýnd síldarsöltun, harmonikan þanin og slegið er upp bryggjuballi. Í Gránu er safn um sögu bræðsluiðnaðarins sem löngum hefur verið kallaður fyrsta stóriðja Íslendinga. Þar hefur verið komið upp lítilli síldarverksmiðju frá 1935-40.

Safnið er opið daglega frá 1. júní - 31. ágúst kl 10-18. Vor og haust kl 13-17.  

Á öðrum tímum er opið eftir samkomulagi.

Aðgangseyrir er 1.400 kr. ókeypis er fyrir börn og unglinga undir 16 ára í fylgd með foreldrum. Lífeyrisþegar og ungmenni undir 20 ára greiða 800 kr.

Skólahópar: grunnskólar 200 kr. á hvern í hópi, framhaldsskólar 300 kr. á hvern í hópi.

Síldarminjasafnið hlaut Íslensku safnverðlaunin árið 2000 er þau voru veitt í fyrsta sinn og Evrópuverðlaun safna árið 2004, Micheletti verðlaunin, þegar safnið var valið besta nýja iðnaðarsafn Evrópu það árið.

Fréttir

Gengið á reka

Jón Ragnar og Hrafn við sprekakerruna
Starfsmenn Síldarminjasafnsins „leyfðu sér þann munað“ að skreppa inn í Fljót um daginn og fara á rekafjöru í Mósvík til að sækja efnivið til bátasmíði – allskyns rótakrappa og bogna stubba sem nota má sem innviði árabáts;  bönd, stefniskrappa og kollharða. Þótt þoka hafi legið yfir ströndinni þá var ferðin ekki farin í leyfisleysi, heldur þvert á móti. Samið var við Sigurð Steingrímsson bónda á Ysta-Mói og fékk hann nýsaltaða síld í tveimur tunnum fyrir skepnurnar í staðinn fyrir spækjurnar.

Lesa meira

Nýtt byggt á gömlu

Í forgrunni eru gamlir bryggjustaurar Ole Tynes
Nú er mokað upp gömlum undirstöðum síldarbrakka Ole Tynes til að leggja nýjan grunn að framtíðar glæsihóteli. Veitingahúsin Rauðka og Hannes Boy eru í gömlum fiskverkunarhúsum. Rækjuvinnsla og höfuðstöðvar Ramma eru byggðar á lóð síldarverksmiðjunnar Rauðku. Veitingahúsið Torgið er í fornu byggingavöruverlsun KFS. Siglósport í Kjötbúð KFS. Sparisjóður Siglufjarðar er starfræktur í húsi Útvegsbanka Íslands. Kítósanvinnsla Primex er í síldarþróarhúsinu Síberíu. Aðalbakarinn bakar í apóteki A.R. Schiöth. Björgunarsveitin Strákar er í loftvarnabyrgi frá seinna stríði, Þjónustustofnun verkafólks, Eining-Iðja, er í gömlu Bólsturgerðinni, Síldarminjasafn Íslands er risið á lóðum söltunarstöðvanna Nöf, Njarðar, Ísfirðinga/Róalds og Ásgeirs Péturssonar. Og svo framvegis.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning