Gengið á reka
Almennt - föstudagur 14.júní 2013
Starfsmenn Síldarminjasafnsins „leyfðu sér þann munað“ að skreppa inn í Fljót um daginn og fara á rekafjöru í
Mósvík til að sækja efnivið til bátasmíði – allskyns rótakrappa og bogna stubba sem nota má sem innviði
árabáts; bönd, stefniskrappa og kollharða. Þótt þoka hafi legið yfir ströndinni þá var ferðin ekki farin í
leyfisleysi, heldur þvert á móti. Samið var við Sigurð Steingrímsson bónda á Ysta-Mói og fékk hann nýsaltaða síld
í tveimur tunnum fyrir skepnurnar í staðinn fyrir spækjurnar.
Lesa meira
Lesa meira


