Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Aðalfundur FÁUM

Merki FÁUM
Merki FÁUM

Aðalfundur Fáum, Félags áhugamanna um minjasafn, var haldinn 21. ágúst sl. Fundarstörf voru samkvæmt lögum félagsins. Guðmundur Skarphéðinsson formaður kynnti störf félagsins á sl. ári og Aníta Elefsen safnvörður kynnt ársreikninginn. 

Í árslok 2009 var eign félagsins á bankareikningi 530.674.- krónur. Stjórn félagsins var endurkjörin en hana skipa Guðmundur Skarphéðinsson formaður, Hinrik Aðalsteinsson ritari og meðstjórnendur eru Regína Guðlaugsdóttir, Hannes Baldvinsson og Sigurður Hafliðason. Þá var samþykkt að hækka árgjaldið úr 1000 kr. í 2000 kr. en það hafði verið óbreytt frá stofnun félagsins fyrir 20 árum.

Ákveðið var að senda félögum FÁUM sérstakt ávarp með innheimtu félagsgjalda þessa árs - og hljóðar það svo:

Kæru félagar í FÁUM,

Þann 23. september 2009 fagnar Félag áhugamanna um minjasafn 20 ára afmæli sínu. Að baki er uppbygging og rekstur Síldarminjasafnsins, eins af stærstu söfnum landsins. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem fjöldahreyfing stendur að uppbyggingu safns á Íslandi og hefur það orðið öðrum sem hvatning og fyrirmynd. Ykkur, góðu félagar, er þakkaður mikilvægur stuðningur á umliðnum árum.

Eftir að Síldarminjasafnið var gert að sjálfseignarstofnun fyrir þremur árum hefur FÁUM haft það hlutverk að vera helsti bakhjarl safnsins og er fulltrúi FÁUM formaður safnstjórnar.

Á síðasta ári styrkti FÁUM Síldarminjasafnið um kr. 250.000.- til rannsókna á síldarsögunni. Ungur sagnfræðinemi vann að verkinu í um tvo mánuði og aflaði hann víðtæks fróðleiks um störf og lífshætti siglfirskra síldarstúlkna. Um 10 viðtöl voru hljóðrituð og skráð í tölvur ásamt því að nokkur eldri viðtöl voru rituð niður.

Annað dæmi er að á næstunni gæti orðið breyting á eignarhaldi Úra- og silfursmíða-verkstæðisins í Eyrargötunni og gæti FÁUM þurft að koma þar að máli. Er það í góðu samræmi við lög félagsins um það að allt sé í sögu Siglufjarðar því viðkomandi.Nýlega var haldinn aðalfundur félagsins og var þá ákveðið að hækka árgjald í kr. 2000.-  Þess ber að geta að gjaldið hefur ekki hækkað í þau 20 ár sem félagið hefur verið starfandi.

Áhugi ykkar í formi velvilja og  félagsgjalda er eina vísa leiðin fyrir félagið til að hlúa að sögu Siglufjarðar. Væntum við því áframhaldandi stuðnings ykkar.

Með góðri kveðju,stjórn FÁUM

 

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning