
Ljósm. Sigurður Ægisson
Er gestatölur voru lagðar saman í lok dags sl. laugardag kom í ljós að síðasti gestur dagsins hafði verið sá fimmtán
þúsundasti á árinu. Eru gestir safnsins það sem af er árinu því orðnir rúmlega eitt þúsund fleiri en árið
2004, þegar 14.000 gestir heimsóttu safnið. Til gamans má geta þess að gestir í júlí voru nær 9.000, eða um fimm hundruð fleiri en
á tímabilinu 1. janúar - 1. ágúst í fyrra.