Bátasmíðaverkefnið
Almennt - þriðjudagur 21.júlí 2009

Öðru umfari byrðings að ljúka
Verkefnið byrjaði 6. júlí sl. Björn Lillevoll bátasmiður og Skúli Thoroddsen trésmiður safnsins hófust þá handa að smíða bát með eyfirska laginu. Farið er í öllum aðalatriðum eftir “Bát Soffíu á Nesi” sem smíðaður var í Slippnum á Siglufirði 1934. Þessi leið er talin heppileg til að endurheimta skipulega forna þekkingu í hefðbundinni bátasmíði.
Tveir menn að auki, Björn Jónsson og Sveinn Þorsteinsson, gamalreyndir úr Slippnum, koma einnig að smíði bátsins. Fyrri hluti þessa samvinnuverkefnis fór fram í Gratangen síðsumars 2008 þegar Björn Jónsson og Örlygur Kristfinnsson safnstjóri dvöldu í Gratangen um nokkurra vikna skeið við smíði norsks árabáts undir verkstjórn Björns Lillevoll.
Verkefnið er mjög kostnaðarsamt, auk launa starfsmanna er allt efni keypt frá Noregi og leiga greidd fyrir nokkurra vikna afnot af Slippnum.
Styrkir hafa fengist frá menntamálaráðuneytinu, Þjóðhátíðarsjóði Seðlabankans, og frá tveimur norrænum menningarsjóðum: Letterstedska Föreningen og Stiftelsen Clara Lachmanns Fond.
Verkefnisstjórn er í höndum Örlygs safnstjóra og Sigurbjargar Árnadóttur á Akureyri.
Meðfylgjandi ljósmynd var tekin 20. júlí af Skúla Thoroddsen og Birni Lillevoll þar sem þeir standa við nýsmíðina: Öðru umfari byrðings að ljúka. - ök

