Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Dómkórinn í Bátahúsinu

Dómkórinn á tónleikum í Bátahúsinu. Mynd: Sveinn Þorsteinsson.
Dómkórinn á tónleikum í Bátahúsinu. Mynd: Sveinn Þorsteinsson.
Dómkórinn í Reykjavík og Síldarminjasafnið buðu íbúum Fjallabyggðar á tónleika í Bátahúsinu síðastliðinn sunnudag, 22. maí. Kórinn var með tónleika á Dalvík á laugardeginum og á heimleið kom fólkið við á Siglufirði og skoðaði safnið. Launin voru fríir tónleikar í Bátahúsinu fyrir íbúa Fjallabyggðar. Sami háttur var hafður á þegar Kór Norðfjarðarkirkju kom í heimsókn í apríl, þá bauð Síldarminjasafnið til tónleika sem voru mjög skemmtilegir og vel sóttir. Á efnisskrá Dómkórsins voru íslensk þjóðlög og enskir madrígalar. Stjórnandi: Kári Þormar. Síðasta lagið sem Dómkórinn söng eftir uppklapp var „Þýtur í stráum” - kvæðalag í útsetningu Sigurðar Rúnars Jónssonar (Didda fiðlu). Ljóðið er eftir Trausta Reykdal sem var hér eitthvað á Siglufirði á síldarárunum. Lagið kvað og kynnti Sigurbjörn skóari Stefánsson sem lengi bjó hér í bæ. Sigurbjörn er talinn hafa lært lagið í Fljótum og fyrir hans tilverknað er það orðið landsþekkt. Er það gott dæmi um hvernig alþýðulistin hefur verið kynnt og orðið að dýrmætum perlum í eigu þjóðarinnar.

Þýtur í stráum þeyrinn hljótt,
þagnar kliður dagsins.
Guð er að bjóða góða nótt
í geislum sólarlagsins.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning