Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Dúfurnar fá nýjan samastað

Mynd ÖK
Mynd ÖK
Þann 1. september var komin stór kranabíll fyrir framan Bátahúsið í þeim tilgangi að rífa niður síðasta bryggjuhúsið frá síldarárunum. Elstu leifar hússins voru frá Njarðarstöðinni, eða gömlu söltunarstöð KEA. Áður en hafist var handa við niðurrif þurfti að koma íbúum hússins fyrir á nýjum stað, en eins og flestir Siglfirðingar vita hefur bryggjuhúsið verið dvalarstaður dúfnanna í bænum. Eigendur hússins, þeir Ólafur og Pétur Guðmundssynir fönguðu dúfurnar í pappakassa og ferjuðu þær yfir í nýju svítuna sína, sem staðsett er í syðsta húsi Síldarminjasafnsins, Ásgeirsskemmu. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd virðast dúfurnar una sér vel á nýjum stað og vonum við að þeim eigi eftir að líka nýju heimkynnin.

Smellið hér til að fræðast um dúfurnar.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning