
Frá síldarsöltuninni í gær
Mikill fjöldi fólks fylgdist með söltunarsýningu við Síldarminjasafnið kl. 15.00 í gær, á laugardegi. Í tilefni af
Síldardögum og Síldarævintýri verða fleiri sýningar en venjulega við Roaldsbrakka. Næsta sýning verður föstudaginn 29.
júlí kl. 20.00, síðan laugardaginn 30. júlí, bæði kl. 14.00 og 15.00, og loks sunnudaginn 31. júlí kl. 15.00. Sýningar
þessar hafa notið mikilla vinsæla undanfarin ár og þykja gefa innsýn í lífið á síldarárunum.
Upprunalega birtist fréttin á www.siglfirdingur.is