Flís-tríóið á sumartónleikum á Siglufirði
Almennt - laugardagur 11.júlí 2009
Flís-tríóið
Flís-tríóið var stofnað árið 1998 þegar þeir Davíð, Valdi og Helgi kynntust í Tónlistarskóla F.Í.H. Í fyrstu léku þeir hefðbundinn jazz af kappi en fljótlega fóru þeir félagar að blanda hinum ýmsu stílum og stefnum inn í tónlist sína. Má segja að hinir ólíklegustu hlutir séu soðnir saman í eina risastóra og matarmikla hljóðsúpu. Árið 2005 gaf tríóið út plötuna Vottur með lögum sem Haukur Morthens gerði vinsæla. Síðar komu út tvær tónleikaplötur: Live at Kaffi Hljómalind og Live at Rvk Jazzfestival with Liudas Mockunas.
Miðasala er við innganginn. Aðgangseyrir kr. 2000.

