Fundur safnmanna á Eyjafjarðarsvæðinu
Almennt - þriðjudagur 20.október 2009

Mynd frá fundinum í Bátahúsinu - ljósm. Hörður Geirsson
Þann 7. október komu galvaskir safnamenn af Eyjafjarðarsvæðinu í heimsókn til Siglufjarðar. Erindið var fundur
safnaklasans við Eyjafjörð sem haldin var á Síldarminjasafninu. Safnamenn vildu auðvitað ólmir skoða þau söfn sem Siglufjörður hefur
upp á að bjóða og farið var á Þjóðlagasetrið, Úra- og silfursmíðaverkstæðið og loks á
Síldarminjasafnið, að loknum hádegisverði á Harbour House Café. RMH

