Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Geisladiskurinn Síldarævintýrið endurútgefinn

Vatnslitamynd eftir Örlyg Kristfinnsson
Vatnslitamynd eftir Örlyg Kristfinnsson

Geisladiskurinn Síldarævintýrið var fyrst gefinn út árið 1992 og naut hann mikilla vinsælda. Á Síldarminjasafninu seldist hann í tugum eintaka, bæði til íslenskra og erlendra safngesta sem vildu kynna sér tónlistarmenningu síldaráranna.

Lögin hafa öll beina skírskotun til síldaráranna og/eða sjómennskunnar en það var Jónatan Garðarsson sem hafði umsjón með útgáfu og lagavali. Jónatan var staddur á Siglufirði nú í sumar og átti ágætan fund með starfsmönnum Síldarminjasafnsins sem stungu því að honum að geisladiskinn þyrfti að gefa út aftur, en hann hefur verið ófáanlegur um hríð.  Nú hefur geisladiskurinn verið endurútgefinn, með nýrri mynd á forsíðu, vatnslitamynd eftir Örlyg  Kristfinnsson. Myndin er úr bók Örlygs, Saga úr síldarfirði, sem gefin verður út í haust. Geisladiskurinn er fáanlegur í Róaldsbrakka.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning