Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Góð aðsókn á Síldarminjasafnið

Róaldsbrakki
Róaldsbrakki
Aðsókn á Síldarminjasafnið er mikil um þessar mundir, en yfir 7.500 gestir hafa heimsótt safnið það sem af er árinu. Á sama tíma í fyrra voru gestir orðnir rúmlega 5.000 og er því um verulega aukningu að ræða. Heimsóknir erlendra ferðalanga hafa aukist nokkuð, en mest hefur aukningin orðið meðal íslenskra ferðamanna – sem eru margir hverjir líklega að heimsækja Siglufjörð vegna tilkomu Héðinsfjarðarganga.

    Síldarminjasafnið er opið alla daga frá kl. 10:00 -18:00. Auk þess býður safnið gestum að fylgjast með síldarsöltun og dansa við harmonikkuleik alla laugardaga kl. 15:00. Vert er að minnast á að allir lögskráðir íbúar Fjallabyggðar fá ókeypis aðgang að safninu, og því tilvalið að heimsækja safnið.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning