Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Grjótveggur við Hlíðarhús

Hrafn og Torfi við vegginn
Hrafn og Torfi við vegginn
Starfsmenn Síldarminjasafnsins hafa verið iðnir að undanförnu við að hlaða þrjátíu metra langan grjótvegg við Hlíðarhús á Hávegi.  Við malbikun götunnar fyrir tveimur árum var gengið nokkuð á lóð hússins og bakkinn rofinn þar sem áður voru grjóthleðslur fram að gamla malarveginum.

Hleðslumennirnir kvarta undan skorti á góðu grjóti, köntuðu og stóru og segja að veggurinn beri þess merki – neðsta lagið varð allgott en síðan varð það að ráði að vinna verkið frjálslega og nýta sér jarðrask í mynni Skarðdals og sækja þangað lyngtorfur og hnausa og bæta ofan á grjótið.
Þess má geta að Anna Snorradóttir gaf safninu Hlíðarhús fyrir einu og hálfu ári.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning