Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Jólakortaútgáfu safnsins lokið

Vetrarkvöld eftir Örlyg Kristfinnsson
Vetrarkvöld eftir Örlyg Kristfinnsson
Síldarminjasafnið hefur hætt árlegri jólakortasölu sem staðið hefur frá 1989.

Þegar Félag áhugamanna um minjasafn hóf að undirbúa uppbyggingu minjasafns á Siglufirði var þessi kortaútgáfa fyrsta fjáröflunarleiðin. Síðan hafa tuttugu mismunandi kort verið prentuð og seld og á þeim tíma hefur minjasafn okkar Siglfirðinga orðið til og vaxið í það að verða eitt af stærstu söfnum landsins. Fyrstu árin gengu félagar í FÁUM í hús og buðu kortin til sölu en síðan fór salan fram í verslunum og með áskrift til brottfluttra Siglfirðinga. Árlega var salan á bilinu 2300-3000 kort. Eldri kort verða seld fyrir jólin og verður það auglýst sérstaklega.

Síldarminjasafnið og Félag áhugamanna um minjasafn þakka fyrir viðskiptin og góðan stuðning á umliðnum árum! Sérstakar og innilegar þakkir fær Guðný Guðmundsdóttir fyrir ómetanlegt framlag.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning