Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Jómfrúarferð Soffíu

Örlygur og Skúli róa - ljósm. Patrick Hogan
Örlygur og Skúli róa - ljósm. Patrick Hogan
Hún Soffía okkar fór í jómfrúarferð sína í síðustu viku. Bátsverjar voru þeir Skúli Thoroddsen og Örlygur Kristfinnsson. Á myndinni er ekki annað að sjá en að áratökin séu samstillt hjá þeim köppum. Það eru líka ófá handtökin sem liggja að baki smíðinni og höfum við fylgt verkinu eftir með markvissum fréttaflutningi hér á síðunni. Eftir stutta sjóferðabæn: "Fleyið blessi og farmenn þess faðirinn góði og vísi" var bátnum gefið nafnið Soffía. RMH


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning