Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins 2009
Almennt - miðvikudagur 10.júní 2009

Raggi Bjarna
Þá verða haldnir hinir vinsælu tónleikar Á frívaktinnimeð Ragga Bjarna sem aðal söngvara. Um miðjan dag verður sagnamannafundur þar sem að sagðar verða sögur úr síldarbænum. Í tengslum við tónleikana gefst gestum færi á að senda inn kveðjur sem lesnar verða með óskalögum. Vinsamlegast sendið kveðjur á netfangið: safn@sild.is fyrir fimmtudaginn 18. júní.
Nánar um dagskrá Jónsmessuhátíðarinnar hér á eftir.
Bátahúsið kl. 14– Sagnamannaþing - Sögur úr síldarbænum.
Sögumenn: Ragnar Bjarnason, Ragnar Páll Einarsson, Hannes Baldvinsson, Páll Helgason, Örlygur Kristfinnsson og etv. fleiri
Fundarstjóri: Ómar Hauksson.
Bátahúsið kl. 20.30 – Á frívaktinni - óskalagaþáttur sjómanna “í beinni útsendingu”
Hljómsveitin Stúlli og Stúararnir með Ragga Bjarna og gestasöngvurunum Mundínu Bjarnadóttur, Birgi Ingimarssyni, Birni Val Gíslasyni, Birni Sveinssyni, Friðfinni Haukssyni og Þórarni Hannessyni.
Hljómsveitina skipa: Sturlaugur Kiristjánsson hjarmónika og hljómborð, Ragnar Páll gítar, Óttar Sæmundsen kontrabassi og Dúi Benediktsson trommur og söngur.
Bryggjusöngvar - fjöldasöngur.

