Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Jónsmessuhátíðin

Mynd: Steingrímur Kristinsson
Mynd: Steingrímur Kristinsson
Árleg Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins var haldin þann 20. júní sl.
Fyrri hluta dags var haldið sagnamannaþing í Bátahúsinu, forskriftin var „Sögur úr síldarbænum“ –  Þar rifjuðu sögumennirnir Ragnar Bjarnason, Ragnar Páll Einarsson, Hannes Baldvinsson, Páll Helgason og Örlygur Kristfinnsson upp skemmtilegar minningar frá síldarárunum á Siglufirði. Sagnamannaþingið var vel sótt, um 150 gestir voru viðstaddir.

Yfir 350 manns mættu á „Frívaktina“ – óskalagaþátt sjómanna sem hófst í beinni útsendingu úr Bátahúsinu kl. 20:00. Gestum gafst tækifæri á að senda kveðjur sem lesnar voru með óskalögum þáttarins.
Margir söngvarar sungu undir spili hljómsveitarinnar „Stúlli og Stúararnir“. Hinn feykivinsæli Raggi Bjarna var aðalsöngvari kvöldsins ásamt gestasöngvurunum Mundínu Bjarnadóttur, Birgi Ingimarssyni, Birni Sveinssyni, Friðfinni Haukssyni og Þórarni Hannessyni. Hljómsveitina skipuðu Sturlaugur Kristjánsson, Ragnar Páll Einarsson, Óttar Sæmundsen og Dúi Benediktsson. Þáttarstjórnandi var Aníta Elefsen.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning