Jónsmessuhátíðin
Almennt - þriðjudagur 21.júlí 2009

Mynd: Steingrímur Kristinsson
Fyrri hluta dags var haldið sagnamannaþing í Bátahúsinu, forskriftin var „Sögur úr síldarbænum“ – Þar rifjuðu sögumennirnir Ragnar Bjarnason, Ragnar Páll Einarsson, Hannes Baldvinsson, Páll Helgason og Örlygur Kristfinnsson upp skemmtilegar minningar frá síldarárunum á Siglufirði. Sagnamannaþingið var vel sótt, um 150 gestir voru viðstaddir.
Yfir 350 manns mættu á „Frívaktina“ – óskalagaþátt sjómanna sem hófst í beinni útsendingu úr Bátahúsinu kl. 20:00. Gestum gafst tækifæri á að senda kveðjur sem lesnar voru með óskalögum þáttarins.
Margir söngvarar sungu undir spili hljómsveitarinnar „Stúlli og Stúararnir“. Hinn feykivinsæli Raggi Bjarna var aðalsöngvari kvöldsins ásamt gestasöngvurunum Mundínu Bjarnadóttur, Birgi Ingimarssyni, Birni Sveinssyni, Friðfinni Haukssyni og Þórarni Hannessyni. Hljómsveitina skipuðu Sturlaugur Kristjánsson, Ragnar Páll Einarsson, Óttar Sæmundsen og Dúi Benediktsson. Þáttarstjórnandi var Aníta Elefsen.

