Mugison í Bátahúsinu
Almennt - föstudagur 07.október 2011

Örn Elías, betur þekktur sem Mugison
Hinn landsþekkti tónlistarmaður Mugison heldur tónleika í Bátahúsi Síldarminjasafnsins laugardaginn 8.
október kl. 21.00. Mugison mun flytja lög af nýju plötunni sinni, Haglél, og jafnvel taka einhver gömul og góð líka. Með honum verða
Guðni Finns, Addi trommari og Tobbi.
Nýja platan, Haglél, hefur fengið mjög góða dóma, jafnvel fimm stjörnur af fimm mögulegum. Mugison var með
tvenna tónleika í Reykjavík 1. október og var uppselt á þá báða.
Miðaverð er 2.500 kr., og eru miðar seldir í forsölu á www.mugison.is.

