Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Nýr starfsmaður Síldarminjasafnsins

Skúli Thoroddsen
Skúli Thoroddsen
Skúli Thoroddsen trésmiður hóf störf við Síldarminjasafnið nú í byrjun júlí. Aðalhlutverk hans verður að sinna viðgerðum og viðhaldi á húsa- og bátakosti safnsins.
Skúli er trésmiður að mennt og hefur starfað óslitið að iðn sinni frá 1981 að undanskildum fjórum árum þegar hann vann sem tónlistarkennari. Undanfarinn áratug hefur hann unnið mikið að endurgerð gamalla húsa og fékk hann mjög góð meðmæli frá fyrrverandi forstöðumanni Húsafriðunarnefndar. Skúli var ráðinn úr hópi sex umsækjanda um starfið.  -ök 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning