Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Nýr starfsmaður Síldarminjasafnsins

Rósa Margrét og Anita
Rósa Margrét og Anita

Rósa Margrét Húnadóttir hóf störf á Síldarminjasafninu í byrjun ágúst. Hún er ekki alveg ókunn safninu því síðastliðið sumar hafði hún þar aðsetur er hún rannsakaði skíðasögu Siglfirðinga. Rósa er þjóðfræðingur að mennt og lauk mastersgráðu í hagnýtri menningarmiðlun nú í vor. Hún hefur starfað við þjóðháttarannsóknir hjá Þjóðminjasafni Íslands síðustu misseri en mun sinna hinum ýmsu störfum á Síldarminjasafninu. Rósa flutti til Siglufjarðar með fjölskyldu sína.

Á myndinni er Rósa og fjær Aníta Elefsen safnvörður sem senn hverfur til áframhaldandi náms í sagnfræði við Háskóla Íslands.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning