
Saltað undir jólaljósum
Öllum þeim sem starfa í ferðaþjónustu á Norðurlandi var boðið að taka þátt í uppskeruhátíð fimmtudaginn
10. nóvember síðastliðinn.
Hátíðin var að þessu sinni haldin við utanverðan Eyjafjörð og hófst með rútuferð frá Akureyri kl 10 að morgni dags.
Þaðan var ekið út Eyjafjörðinn með viðkomu hjá hinum ýmsu ferðaþjónustuaðilum og eftir ævintýralegan dag var
komið til Siglufjarðar undir kvöld. Myrkur var orðið þegar 130 manns stigu út úr rútunum við Róaldsbrakka. Þar var hins vegar
búið að lýsa upp planið með jólaljósum þar sem síldarstúlkurnar söltuðu síld og slegið var upp bryggjuballi
á eftir. Það er ekki oft sem síldarsöltun fer fram í nóvember, hvað þá undir gulum og rauðum jólaljósum.