Síldarævintýrið
Almennt - þriðjudagur 04.ágúst 2009

Síldarstúlkurnar Bidda og Systa með Ragga Bjarna
Helgin hófst með opnu húsi í Slippnum á föstudag þar sem bátasmíðaverkefnið var kynnt. Á laugardag voru tvær síldarsaltanir á dagskrá og tvennir tónleikar í Bátahúsinu. Raggi Bjarna, Þorvaldur Halldórsson, Þorgeir Ástvaldsson og fleiri sungu gömlu sjómannalögin um borð í Tý SK 33. Á sunnudag var boðið upp á sögusiglingu um fjörðinn á Húna II auk þess sem síðasta síldarsöltun sumarsins fór fram.

