Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Síldarsöltun á Róaldsplaninu

Þann 13. október var síðbúin síldarsöltun á Siglufirði er Síldarminjasafnið bauð íbúum að salta síld á Róaldsplaninu. Síldina fengum við senda frá Síldarvinnslunni á Neskaupstað - alls 700 kíló og hvarf hver einasti sporður ofan í tunnur og fötur.  Gestir nutu aðstoðar síldarstúlkna af planinu við að fylla ílát sín og að því loknu var fólki boðið að kaupa síldina á kostnaðarverði, 1400 krónur fyrir 10 kíló af síld í fötu - ódýr og hollur matur á krepputímum! Það var góður andi á planinu og til að undirstrika stemmninguna hlýddu gestir á harmonikuspil Stúlla og dreyptu á ICY vodka í boði Orra Vigfússonar. RMH       






Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning