
Guðrún Ingimundardóttir og Örlygur Kristfinnsson
Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri er að ferðast um Norðurland til að taka upp efni í sjónvarpsþætti sem sýndir verða á
stöðinni í vetur. Í morgun var tekið upp efni á Siglufirði, alls fjóra þætti.
Um er að ræða spjallþætti sem nefnast Tveir gestir og verða þeir sýndir á mánudögum. Hver þáttur byggir á einum
gestastjórnanda sem fær til sín góðan gest. Upptakan fór fram í Bátahúsinu í morgun og verður spennandi að fylgjast
með.
Mynd: Guðmundur Slarphéðinsson
Texti: Rósa Margrét Húnadóttir