Skemmtiferðaskip heimsækir safnið á laugardag
Almennt - fimmtudagur 04.júní 2009

Spirit of Adventure
Elaine Bruges, sem sér um skipulagningu ferðarinnar segir að ferðirnar til Íslands hafi verið sérlega vinsælar á þessu ári og að farþegarnir hlakki mikið til að heimsækja stærsta sjóminjasafn Íslands og fá á sama tíma að smakka íslenska síld!
Við á Síldarminjasafninu vonumst til þess að bæjarbúar taki þátt í þessu með okkur, veitinga- og þjónustuaðilar hafi opið hjá sér fyrir hádegi á laugardag svo eitthvað verði við að hafast fyrir þá sem ganga um bæinn og að hann beri þess svip að von sé á góðum gestum.

