Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Skíðaminjadeild FÁUM sett á fót

Stjórn FÁUM og forystumenn skíðaminjadeildar
Stjórn FÁUM og forystumenn skíðaminjadeildar

Þeir Bjarni Þorgeirsson, Jón Andrjes Hinriksson, Benóný Sigurður Þorkelsson og Rögnvaldur Þórðarson leituðu til FÁUM – félags áhugamanna um minjasafn, um að stofnuð yrði skíðaminjadeild innan félagsins. Þessi umleitun þeirra var samþykkt á fundi FÁUM 20. febrúar með undirskrift formlegs samnings. Kapparnir vilja færa skíðasögu Siglufjarðar til vegs og virðingar og hafa þegar staðið fyrir lítilli sýningu í glugga KS skrifstofunnar eins og flestum bæjarbúum er kunnugt.  

 


Markmið skíðaminjadeildar er að safna gripum, ljósmyndum og öðrum heimildum sem tengjast skíðaiðkun siglfirðinga á liðinni öld svo opna megi skíðaminjasafn eða standa fyrir sýningum á þessari merku sögu. Starfsmenn Síldarminjasafnsins taka þessu framtaki að sjálfsögðu fagnandi og verða innan handar með skráningu gripa, forvörslu og uppsetningu sýninga. RMH


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning