Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Skólaheimsóknir vorsins

Börn úr Árskógsskóla. Í hópnum er Draupnir frá Hauganesi, nafni annars stærsta bátsins í Bátahúsinu sem einnig er frá Hauganesi
Börn úr Árskógsskóla. Í hópnum er Draupnir frá Hauganesi, nafni annars stærsta bátsins í Bátahúsinu sem einnig er frá Hauganesi
Skólahópum sem heimsækja Síldarminjasafnið hefur fjölgað mikið með tilkomu Héðinsfjarðarganga. Í vor eru skólahóparnir orðnir tíu talsins og koma víða að. Meðal þeirra sem hafa heimsótt okkur þetta vorið eru Grunnskóli Fjallabyggðar, Stórutjarnaskóli í Suður-Þingeyjarsýslu, Lundarskóli á Akureyri, Hrafnagilsskóli í Eyjafjarðarsveit og Árskógsskóli í Dalvíkurbyggð. Einnig fengum við skólaheimsókn frá Suðurnesjunum. Flestir kusu að fara í ratleik í Bátahúsinu og þá var einnig lesið fyrir yngstu börnin í lúkarnum í Tý. Eldri krakkarnir fengu aftur á móti að spreyta sig í kraftakeppni í Gránu og sumir hóparnir skoðuðu öll safnhúsin þrjú.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning