Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Snókur semur við Fáum

Snóksfélagar og stjórn FÁUM
Snóksfélagar og stjórn FÁUM
Örnefnafélagið Snókur og FÁUM - Félag áhugamanna um minjasafn hafa undirritað samning um að FÁUM annist öll viðskipti fyrir örnefnasíðu Snóks, snokur.is
FÁUM mun varðveita sjóð félagsins, afla styrkja og greiða reikninga. Snóksfélagar munu eftir sem áður sjá um faglegu hlið örnefnasíðunnar.
Á snokur.is er kynnt örnefnasafn Helga Guðmundssonar sem hann vann að á Siglufirði um 1940. Þar er nálægt 1300 örnefnum lýst í gamla Sigluneshreppi; Siglufirði, Úlfsdölum, Siglunesi, Héðinsfirði og Hvanndölum.
FÁUM var stofnað 1989 og var hinn formlegi farvegur fyrir uppbyggingu Síldarminjasafnsins og rekstur þess til ársins 2006 þegar félag ásamt Siglufjarðarkaupstað breyttu safninu í sjálfseignarstofnun.
FÁUM starfar nú sem helsti bakhjarl Síldarminjasafnsins. Á meðfylgjandi mynd eru:
Sturlaugur Kristjánsson, Hannes Baldvinsson (Snókur), Páll Helgason (Snókur), Guðmundur Skarphéðinsson form. FÁUM, Þór Jóhannsson, Örlygur Kristfinnsson (Snókur), Sigurður Hafliðason og Regína Guðlaugsdóttir.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning