
National Geographic Explorer
Fyrstu vikur sumarins hafa gengið vel á Síldarminjasafninu. Í maí kom skemmtiferðaskipið National Geographic Explorer frá skipafyrirtækinu
Lindblad tvívegis með nær 150 farþega á safnið. Auk þess hafa komið hópar frá hinum ýmsu fyrirtækjum og vinnustöðum,
nemendahópar á grunn-, leikskóla- og háskólastigi hafa heimsótt safnið ásamt almennum ferðamönnum. Gestafjöldinn hefur aukist um 75%
frá því á sama tíma í fyrra, eða um rúma 700 gesti.