Sýnikennsla í marineringu
Almennt - föstudagur 19.febrúar 2010
Sigurður, Kristrún og Örlygur
Sýnikennslan var í beinu framhaldi af söltuninni á Roaldsplaninu í október. Síldin hefur verkast mjög vel í
vetur og er hin girnilegasta. Söltunin og sýnikennsla í framreiðslu síldarinnar er tilraun Síldarminjasafnsins til að viðhalda gömlum matarhefðum
okkar Siglfirðinga, en síldin spilaði stórt hlutverk í daglegri fæðu fólks hér í síldarbænum.
Þeir sem eiga síldarfötur síðan í haust geta komið í Bátahúsið og sótt þær við hentugleika og jafnvel
fengið uppskriftir að marineringu, sé þess óskað.

