Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Það er svo margt ...

Rósa Margrét Húnadóttir, fagstjóri skráningar á Síldarminjasafninu
Rósa Margrét Húnadóttir, fagstjóri skráningar á Síldarminjasafninu
ef að er gáð í sýningum og geymslum  Síldarminjasafnsins – hvílíkur fjöldi díxla blasir við þegar þeim er safnað saman til skráningar.  Yfir sjötíu tilsláttardíxlar, uppsláttardíxlar, bandadíxlar, norskir díxlar, íslenskir díxlar og svo einhverjir úr smiðju Guðmundar góða.   Við mörgu þarf Rósa Húnadóttir að sjá þegar gripirnir eru skráðir, hverrar gerðar, eigendur, hvar notaðir, gefendur. Og óskað er eftir aðstoð þeirra sem kunna að þekkja til þessara verkfæra. Í raun þarf að fara fram nákvæm athugun og rannsókn gagnvart vinnubrögðum og málnotkun; til dæmis hvaða orð er díxill? Takmarkaðar rannsóknir hafa farið fram á vegum Orðabókar Háskólans á málfari síldarfólksins í kringum veiðar og vinnslu á nítjándu og tuttugustu öld. En á Síldarminjasafninu er unnið að þessu hægt og bítandi ásamt mörgum öðrum verkefnum.   -ök


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning