
Sigmundur, Árni, Rósa og Kristján. Mynd: Guðmundur Skarphéðinsson.
Þrír þingmenn Samfylkingarinnar voru staddir á Siglufirði í gær. Þetta voru þeir Kristján Möller, Sigmundur Ernir og Árni
Páll en þeir höfðu boðað til opins fundar með íbúum Fjallabyggðar.
Einnig höfðu þeir boðað komu sína á Síldarminjasafnið fyrr um daginn. Kristján Möller, sem fæddur er og uppalin á
Siglufirði vildi kynna flokksbræðrum sínum hvernig umhorfs var á Siglufirði á síldarárunum og fengu þeir prýðiskynningu í
Bátahúsinu. Eftir að hafa gengið um kaldar bryggjurnar var farið upp á loft í kaffi þar sem biðu „bestu ástarpungar landsins“ og
síld og rúgbrauð að hætti Síldarminjasafnsins. Yfir heitu kaffi voru heimsmálin rædd og pólitíkina bar á góma. Í
móttökunefnd voru Rósa Margrét Húnadóttir, starfsmaður safnsins og Guðmundur Skarphéðinsson, stjórnarformaður.