Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Þjóðlagahátíðin

Tónleikagestir í margfaldri biðröð við kirkjuna
Tónleikagestir í margfaldri biðröð við kirkjuna
"Mallorkaveður" - hálffullur bær af aðkomufólki - um 3700 gestir á 12 tónleikum - mikil hamingja í loftinu - þannig má lýsa Þjóðlagahátíðinni á 10 ára afmæli hennar.
Það er sannarlega mikill vegsauki að þessari glæsilegu hátíð fyrir Siglufjörð og Fjallabyggð. Ein flottasta menningarhátíð sem haldin er utan Reykjavíkur.
Mikið og gott samstarf hefur löngum verið milli Þjóðlagahátíðarinnar og Síldarminjasafnsins þar sem tónleikar hafa verið haldnir í safnhúsunum frá upphafi, ýmist í Gránu eða Bátahúsinu. Að þessu sinni voru fernir tónleikar haldnir í Bátahúsinu og sóttu þá um 1450 manns. Að auki hélt finnska listakonan Hanneriine Moisseinen sýningu á Gránulofti á verkum sem hún vann á Þjóðlagahátíðinni. -ök



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning