Þjóðlagahátíðin
Almennt - þriðjudagur 21.júlí 2009

Tónleikagestir í margfaldri biðröð við kirkjuna
Það er sannarlega mikill vegsauki að þessari glæsilegu hátíð fyrir Siglufjörð og Fjallabyggð. Ein flottasta menningarhátíð sem haldin er utan Reykjavíkur.
Mikið og gott samstarf hefur löngum verið milli Þjóðlagahátíðarinnar og Síldarminjasafnsins þar sem tónleikar hafa verið haldnir í safnhúsunum frá upphafi, ýmist í Gránu eða Bátahúsinu. Að þessu sinni voru fernir tónleikar haldnir í Bátahúsinu og sóttu þá um 1450 manns. Að auki hélt finnska listakonan Hanneriine Moisseinen sýningu á Gránulofti á verkum sem hún vann á Þjóðlagahátíðinni. -ök

