Tíu þúsund gestir
Almennt - mánudagur 25.júlí 2011

Róaldsbrakki
Í fyrradag kom tíu þúsundasti gesturinn í ár í Síldarminjasafnið. Þetta er mun meiri
aðsókn en á sama tíma í fyrra og enginn vafi á að Héðinsfjarðargöng hafa haft sitt að segja, enda hefur íslenskum gestum
fjölgað meira en erlendum.
Verslunarmannahelgin er eftir og nokkrar góðar vikur þar á eftir svo að búast má við að gestafjöldinn eigi eftir að aukast mikið áður en árið verður gert upp.
Síldarminjasafnið var opnað í bráðabirgðahúsnæði við Suðurgötu árið 1991 og komu 1.500-1.800 gestir fyrstu árin.
Safnið var flutt í Roaldsbrakka sumarið 1994 og það ár komu 4.250 gestir, þar af 250 erlendir. Næstu ár komu 5.000-8.000 gestir á ári
en met var slegið árið 2004, þegar Hákon krónprins Noregs vígði Bátahúsið. Það ár urðu gestirnir yfir 14.000.
Í fyrra voru gestirnir um 11.800.Verslunarmannahelgin er eftir og nokkrar góðar vikur þar á eftir svo að búast má við að gestafjöldinn eigi eftir að aukast mikið áður en árið verður gert upp.
Söltunarsýningarnar hafa notið mikilla vinsælda. Sú fyrsta var á Síldarævintýrinu 1991, fyrir tuttugu
árum, og þá á hátíðarsvæðinu sunnan við Ráðhústorg. Lengst af hafa sýningarnar þó verið við
Roaldsbrakka.
Fréttin birtist upprunalega á www.siglfirdingur.is
Fréttin birtist upprunalega á www.siglfirdingur.is

