
Hljómsveitin Múgsefjun
Næstu sumartónleikar Þjóðlagaseturs og Síldarminjasafns eru með hljómsveitunum Múgsefjun og Bróðir Svartúlfs og verða
þeir haldnir laugardagskvöldið 8. ágúst í Bátahúsinu klukkan 20:00. Aðgangur er ókeypis.
Hljómsveitin Múgsefjun spratt fram á sjónarsviðið undir lok árs 2007 í kjölfar velgengni lagsins
Kalinnar
slóðar á Rás 2. Í maí 2008 kom út þeirra fyrsta geislaplata
Skiptar skoðanir og hefur hún
hlotið jákvæða dóma í hvívetna. Í kjölfar plötuútgáfunnar fylgdu stíf tónleikahöld og samfara
því nutu lög á borð við
Lauslát, Hagsmunatíkin og
Dag eftir
dagtöluverðra vinsælda á íslenskum útvarpsstöðvum. Á íslensku tónlistarverðlaununum 2008 var
Kalin slóð tilnefnt sem besta lagið og
Skiptar skoðanir sem besta platan.
Það sem af er árinu hefur hljómsveitin látið lítið fyrir sér fara, en þess í stað einbeitt sér að
lagasmíðum og upptökum fyrir sína næstu plötu. Það er því viðbúið að ný lög verði höfð með
í farteskinu þegar hljómsveitin ferðast norður yfir heiðar. Frekari upplýsingar um hljómsveitina má finna á slóðinni
http://www.myspace.com/mugsefjun