Tordenskjold fundinn
Almennt - sunnudagur 22.apríl 2012

Tordenskjold - málverk: Vilhelm Arnesen
Skipið var sjósett árið 1852. Það var 50.4 m. á lengd og 12.9 m. á breidd, 1.453 tonn og bar allt að 80 fallbyssur. Stærð flaksins kemur heim og saman við þessi mál og mörg önnur söguleg atriði staðfesta að þarna liggur Tordenskjold.
Erlendur Guðmundsson er atvinnukafari og býr á Akureyri. Eitt helsta áhugamál hans er neðansjávarljósmyndun og kvikmyndun. Hann var hér með konu sinni, Laufeyju Böðvarsdóttur, og syni þeirra, Þorbergi, sem einnig kafaði við þessa leit.
Ekki verður gefið meira upp að sinni um staðsetningu flaksins en að það liggur norðan Eyrarinnar (Siglufjarðareyrar/Þormóðseyrar/Hvanneyrar). Næsta skref í athugun Síldarminjasafnsins á Tordenskjold er að fá kafara Fornleifaverndar ríkisins til að skoða skipsleifarnar. -ök

