
Sigurður Steingrímsson nostrar við kompásinn
TÝR SK 33, stærsta skip Síldarminjasafnsins, er smám saman að ganga í endurnýjun lífdaga - ekki sem veiðiskip heldur lifandi vettvangur til
skoðunar fyrir safngesti og til tónleikahalds.
Á myndinni er Sigurður Steingrímsson, starfsmaður JE vélaverkstæðis, að setja upp kompás-skyggni sem hann smíðaði. Viðgerð
Týs er margháttuð og hefur staðið í mörg ár. Týr var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1946 og gekk til
fiskveiða í ein 40 ár. Síldveiðar munu hafa verið stundaðar á honum í kringum 1950 og hét hann á þeim árum
Skrúður og Hrafn. Týr er stærsti sýningargripur safnsins 19 metrar á lengd og um 65 tonn að þyngd. Á safninu er hann útbúinn sem
dæmigert síldarskip um miðja 20. öld.