Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Fréttir

Veiðarfæraverslun Sig. Fanndal

Sigurður og Rósa í versluninni
Sigurður og Rósa í versluninni
Það mætti halda að Siggi Fanndal sé búinn að opna veiðarfæraverslun sína aftur miðað við þessa mynd sem tekin var nú fyrir nokkrum dögum. Verslunarstjórinn í búðinni sinni gömlu klæddur afgreiðslusloppnum og virðist ekki árinu eldri en á fyrri tíð. En ekki er allt sem sýnist því þarna er hann mættur í Bátahúsið þar sem  veiðafæraverslunin hefur verið endurgerð til sýningar. Með honum á myndinni er Rósa Húnadóttir þjóðfræðingur á Síldarminjasafninu sem stjórnar skráningu safngripa og skipuleggur viðtöl heimildamanna. Og ekki er að spyrja að því hve mikilvægu hlutverki Sigurður Fanndal gegnir þarna. Frásagnir Sigga voru kvikmyndaðar og með þeirri skráningu lögð drög að heimildamyndagerð síðar. 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning