Starfsstúlkur fyrr og nú
Almennt - þriðjudagur 07.maí 2013
Tvær fyrrum starfsstúlkur Síldarminjasafnsins komu samtímis í heimsókn eins og fyrir tilviljun í síðustu viku. Steinunn Sveinsdóttir og Rósa Margrét Húnadóttir. Steinunn var í sumarvinnu í allmörg ár eða til 2006. Rósa var hins vegar ráðin fagstjóri safnsins frá 2009 en lét af störfum í mars s.l.
Á myndinni eru Anita rekstrarstjóri með Ragnhildi dóttur Steinunnar, Rósa með dætur sínar, Önnu Maríu og Ósk Laufeyju og Steinunn.
Starfsfólk og stjórn Síldarminjasafnsins færa Rósu bestu þakkir fyrir vel unnin störf.

