Síldarminjasafn Íslands

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Aðsókn og verðlaun

Síldarminjasafnið var opnað í bráðabirgðahúsnæði við Suðurgötu árið 1991 og heimsóttu 5.100 gestir safnið fram til ársins 1994. Safnið var flutt í Róaldsbrakka sumarið 1994 og það ár komu 4.250 gestir, þar af 250 erlendir. Næstu ár komu 5.000-8.000 gestir á ári en met var slegið árið 2004, er haldið var upp á 100 ára afmæli síldarævintýrisins, og Hákon krónprins Noregs vígði Bátahúsið. Það ár urðu gestirnir yfir 14.000. Næstu þrjú ár voru gestir á bilinu 7.000-8.000 árlega, en árið 2009 voru safngestir tæplega 11.500 og næstum 12.000 árið 2010. Árið 2011 stefnir í met ár hvað aðsókn varðar, en um miðjan júlímánuð eru gestir safnsins orðnir 10.000.

Síldarminjasafnið hlaut Íslensku safnverðlaunin árið 2000 er þau voru veitt í fyrsta sinn og Evrópuverðlaun safna árið 2004, Micheletti verðlaunin, þegar safnið var valið besta nýja iðnaðarsafn Evrópu það árið.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning